19.10.2008 | 10:22
Det var på tid at du....
Sæl öll. Þar sem ég komst ekki í tæka tíð fann ég þörf hjá mér að láta ykkur vita um mína hagi. Loksins læt ég svo verða af því. Ég fór í arkitektúr nám í Aarhus og er á þriðja árinu, verð væntanlega Bachelor næsta sumar ef guð leyfir og ástandi í efnahagsmálunum. Útlitið er ansi svart fyrir námsmenn í útlöndum eins og er, það lagast vonandi fljótlega. Annars eigum við hjónin 5 börn frá 2 - 10 ára.
Mér finnst alveg frábært að geta fylgst með hér á síðunni, flott framtak .
Það hefur aldeilis verið fjör hjá ykkur og þótti mér mjög leitt að komast ekki, en það var vegna breytinga á flugi heim sem gerði útslagið. Verð örugglega með næst.
Læt hér fylgja link á síðuna okkar fyrir þau ykkar sem langar til að skoða myndir: http://barnaland.is/barn/29141/ : Það væri gaman ef aðrir væru með svipaðar síður eða blogg, settu inn sína linka svo við hin gætum fylgst með . steindorh@hotmail.com
Bestu kveðjur Steindór og Sylvía.
Skoðanakönnun
Tenglar
Mínir tenglar
- Facebook Reyðarfjörður Þetta er reyðfirðingagrúbba á Facebook
- Facebook grúbba 69 árgangs
- Bloggsíða ´68 árgangsins
Af mbl.is
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 606
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Steindór !
Mjög gaman að fá þessa færslu frá þér. Þetta er nákvæmlega það sem fleiri mættu gera, henda inn smá upplýsingum um sig, hvað er verið að gera og svona :)
Þú verður bara sóttur með einkaþotu fyrir næsta árgangsmót, sleppur ekki þá :)
Kærar kveðjur til Danmerkur, amk til íslendinganna þar og þeirra dana sem ekki eru skellihlægjandi af okkur núna
Steini (IP-tala skráð) 20.10.2008 kl. 17:54
Gaman að fá þessar fréttir frá þér Steindór
Er nú þegar búin að senda ykkur póst til að fá aðgang að heimasíðunni ykkar. Maður er nú pínu forvitin að sjá öll börnin ykkar.
Væri nú kannski sniðugt að búa til möppu hér inni með myndum af börnum okkar allra.
Kær kveðja, Inga Ósk
Inga Ósk (IP-tala skráð) 21.10.2008 kl. 09:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.